Við Bugðufljót á Tungumelum í Mosfellsbæ eru athafnabil til sölu og leigu. Bilin eru í þremur stærðum 40 fm, 60 fm og 95 fm og eru laus til afhendingar nú þegar. Bilin eru vandlega byggð á afgirtu og myndavélavöktuðu svæði.
Sameiginlegt aðgengi að salernum og bílaþvottaaðstöðu innanhúss fyrir eigendur og leigjendur.
Aðstaðan er í sameiginlegri nýtingu allra sem eiga bil innan svæðisins og er rekið af húsfélaginu.
Bilin að Bugðufljóti eru vandlega byggð ýmist úr forsteyptum einingum eða samlokueiningum frá Límtré Vírnet úr steinull og stáli. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru bilin upphituð með hitaveituofnum. Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð og upplýst. Svæðið verður afgirt og aðgangi stýrt í gegnum tvö rafdrifin hlið. Bílastæði í séreign fylgja öllum bilum í formi 35 m2 séreignarsvæðis fyrir utan hvert bil þar sem hægt er að leggja tveimur bílum.
Bugðufljót er einstaklega vel staðsett og auðvelt aðgengi að svæðinu af Vesturlandsvegi. Skortur er á húsnæði af þessari gerð á austurhluta höfuðborgarsvæðisins.
Fyrir upplýsingar um bil til leigu hafið samband við leiga@bugdufljot.is